Vorralli BÍKR 2012 er lokið.
Vorralli BÍKR 2012 lauk nú fyrir stundu. Staðfest úrslit keppninnar er að finna hér
Nánari umfjöllun um framgang rallsins verður að finna á http://ehrally.blog.is/blog/ehrally/ seinna í kvöld.
Keppendur er þakkað fyrir drengilega keppni og starfsmenn keppnisstjórnar fá sérstakar þakkir fyrir frábærlega unnin störf en án þeirra yrði þetta aldrei að veruleika.
|
Staðan eftir sex sérleiðir Hilmar B. Þráinssson og Dagbjört Rún Guðmundsdóttir halda enn öruggri forystu í Vorralli BÍKR þegar þrjár leiðir eru eftir. Þau tóku besta tíma á leið 5, upp Hítardalinn og hafa rétt rúma mínútu í forskot á Jóhannes V. Gunnarsson og Björgvin Benediktsson. Jóhannes og Björgvin klóruðu í bakkann með besta tíma niður Hítardalinn. Í þriðja sæti eru Guðmundur Höskuldsson og Ólafur Þór Ólafsson en þeir náðu nokkuð óvænt besta tíma á fjórðu leið, Svarfhólsmúla. Henning Ólafsson og Árni Gunnlaugsson hafa sigur í eindrifsflokki í hendi sér eftir að helstu keppinautar þeirra, Gunnar og Jóhann Hafsteinssynir, féllu út á leið niður Hítardalinn. Heildarstaða – Total
a) Aðrar refsingar — Other penalties
Þegar þremur leiðum af níu er lokið í Vorralli BÍKR hafa Hilmar Bragi Þráinsson og Dagbjört Rún Guðmundsdóttir öruggt forskot en rúmlega mínútu á eftir þeim eru Jóhannes V. Gunnarsson og Björgvin Benediktsson. Í þriðja sæti og fremstir í flokki fjórhjóladrifsbíla án túrbínu eru Guðmundur Höskuldsson og Ólafur Þór Ólafsson. Fast á hæla þeirra koma Katarínus Jón Jónsson og Ívar Örn Smárason en þessar áhafnir voru á sama tíma eftir fyrsta leiðarhluta. Henning Ólafsson og Árni Gunnlaugsson leiða eindrifsflokkinn nokkuð þægilega með hálfrar mínútu forskot á bræðurna Gunnar og Jóhann Hafsteinssyni. Hér að neðan má sjá heildarstöðuna eftir þrjár sérleiðar. Heildarstaða – Total
a) Aðrar refsingar — Other penalties Tímamaster Vorralls BÍKRHér er að finna tímamaster Vorralls BÍKR sem að fram fer um næstu helgi. Vegfarendur er bent á að kynna sér vel lokanir vega til þess að forðast óþarfa óþægindi. ATH ! Við minnum á að tilkynningar til keppenda birtast hér á heimasíðu klúbbsins undir liðnum tilkynningar og er það á ábyrgð keppenda að kynna sér þær og lesa. Það er áréttað að www.bikr.is er formleg upplýsingatafla keppninnar.
Skráning í Vorrall BÍKR 2012 hafin.Skráning er hafin í Vorrall BÍKR 2012 og markar það upphafið á Íslandsmótinu í rallakstri. Keppnin mun fara fram í nágrenni Reykjavíkur og vonast keppnishaldarar eftir góðri mætingu svo úr verði hin besta keppni. Keppnin fer fram dagana 18-19 maí næstkomandi en hluti rallsins verður ekinn á föstudagskvöldi og síðan verður laugardagur þétt pakkaður með skemmtilegum leiðum. Reikna má með að nokkrar nýjar sérleiðir verði notaðar sem gerir spennuna enn meiri. Frekari upplýsingar og skráningarform er að finna hér undir liðnum tilkynningar á valstikunni vinstra megin. f.h. Keppnisstjórnar rallsins Jón Þór Jónsson
|




