Miðsumarrallý 2012 - Upplýsingaskýrsla 1
Breyting hefur orðið á tímasetningu keppnisskoðunar en hún verður fimmtudaginn 28. júní klukkan 18:00. Staðsetning verður uppgefin síðar.
Hér má sjá leiðarlýsingu Miðsumarrallsins ásamt tímamaster. Er hvort tveggja birt með fyrirvara um leyfi veghaldara. Vegna þessa fyrirvara er keppendum bent á að skoða einnig leiðina um Tröllháls.
Þar sem þjónustubann er samkvæmt leiðarlýsingu eru þjónustubílar óheimilaðir. Brot á slíku banni varðar brottvísun úr keppni.
Kærugjald er 25.000 kr. vegna annarra atriða en útbúnaðar keppnisbifreiða.
Leiðarlýsing Miðsumarrallý BÍKR 2012
Að sérleið 1:
Ekið er sem leið liggur frá rásstað í Reykjavík um Mosfellsbæ. Síðan veg 36 til Þingvalla, beygt til vinstri inn á veg 52 og áfram inn á veg 550. Eknir eru 650 metrar þangað til að komið er framhjá gatnamótum við veg F338.
Sérleið 1:
Ekið um Kaldadalsveg nr 550 frá gatnamótum við veg F338 að gatnamótum við veg 518.
Ferjuleið að sérleið 2:
Beygt er til hægri á gatnamótum vega 550 og 518. Eknir eru 3.9 km eftir vegi 518, beygt er til hægri inn á veg 578, Arnarvatnsveg.
Sérleið 2:
Ekið er eftir vegi 578 frá gatnamótum við veg 518 inn að Surtshelli.
Ferjuleið að sérleið 3:
Snúið við á plani við Surtshelli. Á þessarri ferjuleið er óheimilt að gera við nema með þeim áhöldum sem í keppnisbílnum eru, þjónustubann er á þessari ferjuleið.
Sérleið 3:
Sérleið 2 ekin til baka.
Ferjuleið að sérleið 4:
Beygt er til vinstri inn á veg 518, eknir 3.9 km eftir þeim vegi. Beygt til vinstri inn á veg 550.
Sérleið 4:
Ekið er um Kaldadalsveg nr 550 að gatnamótum við veg F338.
Ferjuleið að sérleið 5:
Ekið c.a. 650 m suður veg 550, beygt til hægri inn á veg 52. Á þessarri ferjuleið er óheimilt að gera við nema með þeim áhöldum sem í keppnisbílnum eru, þjónustubann er á þessari ferjuleið.
Áhöfnum er heimilt að fylla á bensín, keppnisstjórn mun koma eldsneyti á svæðið fyrir þá sem þess óska.
Sérleið 5:
Ekinn vegur 52 u.þ.b. 11 km frá gatnamótum við veg 550 niður að rimlahliði við Þverfell.
Ferjuleið að endamarki:
Ekið niður Lundarreykjadal um veg 52, beygt til vinstri inn á veg 50. Á Seleyri er beygt til hægri inn á veg 1 sem lið liggur að Olís í Borgarnesi.

Hægt er að fá tímamaster sendan á pdf-formi í tölvupósti.